-
Möndlumjólk og krukkuhafragrautur
Thursday, February 21, 2013
Ég gerði nýjan skammt af möndlumjólk í gær. Ég var komin með smá nóg af kókosmjólk, í öllu. Möndlumjólkin sem ég gerði í gær var síðan sú allra besta sem ég hef gert. Ég notaði fleiri döðlur og hreina vanillu (ekki dropa) sem ég var að splæsa í handa sjálfri mér.
Það er mjög létt að gera möndlumjólk. Maður leggur desilíter eða bolla af möndlum í vatn í 12-24 tíma (ég læt desilíter duga, mjólkin klárast ekki það hratt hjá mér). Svo er vatninu hellt af möndlunum og þær maukaðar í blandara ásamt 3-4 desilítrum (eða bollum) af vatni og 3-5 döðlum sem hafa legið í bleyti í 20 mínútur. Svo bragðbætti ég hana með hnífsoddi af vanillu og agnarögn af salti. Ég hellti maukinu í gegn um sigti og síðan aftur í gegnum (hreinan og ónotaðan) nælonsokk. Þá mjólkar maður vökvann í gegn, mjög skemmtilegt verk. Svo fór hún í glerflösku og inn í ísskáp.
En ég held áfram að prófa bannflokkana eftir Whole30 og í gær/dag var glúteinlaust kornmeti prufa. Ég notaði því möndlumjólkina og bjó mér til krukkuhafra eins og ég borðaði svo mikið af í haust. Ég var búin að sakna þess að fá mér krukku með hafragumsi í morgunmat svo ég var mjög glöð í morgun. Í stað AB mjólkur og mjólkur notaði ég möndlumjólkina og setti hafra, chia fræ, banana og frosin hindber út í. Allt hrist saman í krukku og geymt í ísskáp yfir nótt.
Glúteinlausa kornmetisprufan fór reyndar í smá rugl hjá mér því mér bauðst óvænt að fara á sushinámskeið í gær. Ég greip að sjálfsögðu tækifærið og það var mjög skemmtilegt, en þá borðaði ég sushi með hrísgrjónum og soyasósu sem tilheyra sitt hvorum bannflokknum. En svona er þetta bara, og ég reyni svo að halda áfram næstu daga á hreinu og beinu brautinni.
Posted by Ragnhildur at 3:00 PM | Labels: Hafrar, Morgunmatur, Paleo, Uppskrift | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
Mínímalískar pönnukökur
Sunday, February 17, 2013
Haltu á ketti hvað ísinn í gær var góður!!! Svona svo ég hrósi sjálfri mér svolítið mikið, vóts hvað mér fannst hann sjúklega góður. Hluti af því er ábyggilega sú staðreynd að ég var ekki búin að borða ís eða súkkulaði í rúman mánuð... en ég sleikti skálina nánast mér fannst hann svo góður. Una systir sagði að hún hefði viljað meiri sykur/döðlur í hann en við erum ekki með sömu sykurpallettuna og fólk getur auðvitað still sykurmagnið eftir behag. Mér fannst hann alveg akkúrat passlega sætur án þess að vera of, og dökkt súkkulaðibragðið naut sín. Næst prófa ég að gera hann úr kókosmjólk til að gera hann paleovænni.
Ég bjó til sunnudagsmorgunverð í morgun, einfaldar bananapönnsur með jarðarberjum og smá grískri jógúrt (þessi mjólkurdagur minn teygðist aðeins yfir í mjólkurhelgi, en bara fram að hádegi). Ég hafði heyrt af þessum "tveggja hráefna" pönnsum áður en hafði nákvæmlega enga trú á því að þær væru bragðgóðar. En ég hef gert þær tvisvar sinnum núna og þær koma ótrúlega vel út Alls ekki yfirþyrmandi eggjabragð eða áferð.
Bananapönnsur
Grunnurinn í þessum pönnsum er 1 þroskaður banani og tvö egg. Það þarf ekkert annað! Ég stappaði banana og skellti í könnu með tveimur eggjum og þeytti saman með töfrasprota. Svo bræddi ég rúma teskeið af kókosolíu á pönnukökupönnu og hellti út í ásamt kanilklípu og saltkorni. Ég steikti svo litlar lummur á tæpum miðlungshita úr deiginu og borðaði með niðurskornum ferskum jarðarberjum ásamt grískri jógúrt með döðlumauksskvettu í. Ég borðaði ekki allar pönnsurnar ein, en alveg vel rúman meirihluta. Ótrúlega góður sunnudagsmorgunmatur og skemmtilega hollur!
Posted by Ragnhildur at 11:57 AM | Labels: Bakstur, Bananar, Morgunmatur, Paleo, Uppskrift | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
Afmælisbaka
Sunday, February 10, 2013
Ég bjó til eggjaböku fyrir barnaafmæli hjá systur minni í dag. Hún heppnaðist mjög vel og hvarf fljótt á veisluborðinu. Ég var búin að skoða einhverjar uppskriftir sem viðmið og henti svo saman í þessa. Mjög góð og hentug í boð. Hún er Paleo, en auðvitað virkar svona baka fyrir alla.
Eggjabaka
200 gr beikonkurl
1/2 laukur
2 hvítlauksrif
1/2 pakki sveppir
120 gr frosið spínat
8 egg
1/4 bolli kókosmjólk
1 tsk óreganó
1 tsk timjan
1 tsk vínsteinslyftiduft
salt og pipar
12 kirsuberjatómatar
Hita ofn í 200°C. Ég steikti beikon á pönnu og setti svo til hliðar. Skar lauk, sveppi og hvítlauk niður og steikti í beikonfitunni og setti svo með beikoninu til hliðar og kældi. Afþýddi spínatið og kreisti vökvann úr. Skar það niður. Hrærði eggin, kókosmjólkina og kryddið saman. Smurði eldfast mót með olíu og dreifði beikonblöndunni í botninn. Svo dreifði ég spínatinu yfir og hellti svo eggjablöndunni yfir. Ég skar tómatana í helminga og raðaði ofan á og bakaði svo bökuna í ofni í um 30-35 mínútur.
Posted by Ragnhildur at 10:28 AM | Labels: Paleo | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
mjólk í kaffið ó já
Saturday, February 9, 2013
Ég datt niður á uppskrift á netinu að "kaffirjóma" án mjólkur í kaffið, Paleostyle. Ég er búin að drekka kaffi með kókosmjólk út í hingað til og það er bara ekki alveg nógu gott. Það kemur svo mikið yfirþyrmandi kókosbragð og stundum bætist jafnvel eitthvað rammt bragð við. En þessi uppskrift gerir léttan og froðukenndan kaffirjóma með kókoskeim, en ekki of miklum. Ég hermdi alveg eftir og útkoman var svona líka ljómandi. Ég hlakka til að mæta í vinnuna á mánudaginn og geta drekkt mér í kaffi!Bara svo það sé á hreinu, þá eru þetta loftbólur, ekki kekkir :)
Kaffirjómi
1 dós kókosmjólk
1 egg
2 msk kókosolía
nokkrir dropar vanilla
Öllu skellt í blandara og þeytt vel saman. Nokkrar teskeiðar í rjúkandi kaffibolla og restin í box eða krukku og inn í ísskáp. Svo má örugglega nota þetta líka eins og skeið af þeyttum rjóma ofan á ávexti.
Posted by Ragnhildur at 5:22 AM | Labels: Paleo | 1 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
Fimmtudagsfiskur
Thursday, February 7, 2013
Ég fattaði allt í einu að það eru alveg vikur síðan ég borðaði seinast fisk! Ekki gott hjá manneskju sem er að vanda sig við að borða hollan og fjölbreyttan mat. Í matinn var ég með mjög fljótlegan og góðan fisk sem tók enga stund að elda og enga stund að borða.
Pestó þorskur með grænmeti
Þorskur fyrir 2-3
Paleo pesto sjá hér
2-3 tómatar
olía/smjör
1 hvítlauksrif
1/2 paprika
1/3 kúrbítur
sveppir
Hita ofn á 200°C. Ég setti þorskinn í eldfast mót, saltaði og pipraði og smurði svo vel af heimalöguðu pestói yfir. Skar tómata í sneiðar og raðaði yfir. Setti í ofn í 15-20 mínútur. Svo skar ég grænmetið niður og steikti á pönnu í smá smjöri og hvítlauk. Með þessu bar ég fram einfalt salat með káli, papriku, gúrku, jarðarberjum og olíu og balsam. Ég var líka með niðursneitt grænmeti ásamt hummus sem snarl. Einfalt og gott, máltíð á innan við hálftíma.Posted by Ragnhildur at 2:03 PM | Labels: Fiskur, Paleo, Uppskrift | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
Paleo-hráfæðis hummus
Tuesday, February 5, 2013
Ég fæ alltaf fréttabréf frá Sollu á Gló í tölvupósti. Í þessari viku sendi hún uppskrift að hráfæðis "hummus" þar sem kúrbítur og kasjúhnetur koma í stað kjúklingabauna. Ég ákvað að henda í einn skammt til að prófa, en ég hafði svosem ekki miklar vonir um bragðið enda finnst mér alvöru kjúklingabaunahummus innilega virkilega sjúklega gott. En haltu á ketti hvað þessi uppskrift kom skemmtilega á óvart!! Ég held það væri auðveldlega hægt að plata fólk með þessari dýfu. Áferðin og bragðið eru alveg spot on. Ég fór aðeins of frjálslega með sítrónusafann og ætla að passa mig aðeins á honum næst, bæði bragðsins vegna og þykktarinnar en ég get svo sannarlega mælt með þessar dýfu með skornu grænmeti í millimál og snarl.
Núna ætla ég að elda smá butternutsquash súpu til að taka með mér í matarboð á morgun. Ég veit það hljómar pínu klikk, en það verður saltkjöt og baunir í matinn í afmælinu hans pabba á morgun og mér datt í hug að elda appelsínugula súpu til að borða ásamt smá saltkjöti, þá er ég næstum eins og hinir. Ég skipti bara út rjómanum í uppskriftinni fyrir kókosmjólk og vona að hún verði ágæt.
Í kvöld gerði ég mjög léttan "einnar pönnu" kvöldverð. Ég keypti svínakjöt í búðinni, því miður voru svínakótilettur ekki til svo ég keypti snitzel, en ég mæli með svínakótilettum. Kryddaði með salti og pipar og smurði smá Dijon sinnepi yfir líka sem ég hræði með ögn af olíu og þurrkuðu timjani. Steikti svo báðu megin á pönnu í hreinsuðu smjöri. Þegar ég var búin að snúa kjötinu og steikja það ögn bætti ég 5 niðursneiddum sveppum á pönnuna og setti lok yfir. Þetta mallaði í smá stund þannig að það myndaðist soð á pönnunni með sveppunum. Borðaði þetta svo með salati. Fínasti kvöldverður sem tók um 10 mínútur að elda.Posted by Ragnhildur at 2:03 PM | Labels: Paleo, Uppskrift | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
paleo pestó og fleira
Sunday, February 3, 2013
Ég nýtti sunnudaginn aðeins í undirbúning fyrir matseld vikunnar. Ísskápurinn var orðinn tómlegur svo ég skellti mér í Iceland og verslaði inn grænmeti, ávexti, fræ, kókosmjöl og kjöt. Svo bjó ég til paleo-vænt pestó sem ég ætla að nota á fisk í vikunni, "hreinsað" smjör samkvæmt paleo staðli (og notaði þessa lýsingu sem stuðning) og nýjan skammt af kókossmjöri (sjá hér). Ég er alveg sjúk í kókossmjör, fæ mér teskeið af því með döðlu á kvöldin þegar mig vantar eitthvað sætt.
Paleo pestó
1 pakki basil
væn lúka klettakál
2-3 msk furuhnetur
salt og pipar
ólífuolía
ögn sítrónusafi
Ég skellti öllu í blandara og maukaði vel saman, smakkaði til með salti, pipar og sítrónusafa. Heimagert pestó ætti að duga í svona viku í ísskápnum og svo má líka frysta það í klakaboxi.
Samkvæmt internetinu á að vera fínt að nota kókossmjör í stað smjörs, til að bragðbæta kaffi, sjeika og fleira. Ég hinsvegar stelst bara í það til að fullnægja nammiþörfinni.
Hreinsaða smjörið er svo notað eins og smjör, til að steikja og út í sætukartöflumús og þess háttar. Mér finnst það muna mjög miklu að geta notað smjör, kókosolía og ólífuolía eru bara ekki það sama.
Posted by Ragnhildur at 9:13 AM | Labels: Paleo | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
Ég gerði Paleo útgáfu af kvöldverði sem við borðum mjög reglulega. Kjúklingabringur, kartöflumús og sveppasósa. Það er í miklu uppáhaldi hjá okkur báðum og algjör kósý-comfort matur. Ég þurfti bara aðeins að útfæra matinn til að gera hann paleovænan og heppnaðist hann mjög vel. Ég er farin að elda meira af heilum kjúkling, það er einfalt og þá verður kjöt afgangs fyrir salat daginn eftir og ég get notað beinin í kjúklingasoð.Kjúklingurinn1 heill kjúklingur1/2 sítróna3-4 hvítlauksrifrósmarínsalt og piparSetti kjúkling í eldfast mót, marði hvítlaukinn og stakk honum inn í holið ásamt sítrónunni í bitum. Kryddaði kjúklinginn með salti, pipar og rósmarín. Skellti honum í 220°C heitan ofn og eldaði í klukkutíma.Kartöflumús1 nett sæt kartafla1/3 butternut graskersalt og piparsmjör/kókosolía eða önnur olíaAfhýddi og bitaði niður sætu kartöfluna og graskerið. Sauð í potti með vatni þar til grænmetið var orðið mjúkt. Hellti vatninu af, stappaði í mús og kryddaði með salti og pipar. Setti smá kókosolíu út í líka, en fannst bragðið af henni ögn yfirþyrmandi.Sveppasósakókosolía/smjör eða önnur olía1/2 pakki sveppir1/4 laukur1/4 paprika1 lítil dós kókosmjólkBræddi kókosolíu á pönnu og mýkti laukinn í henni. Sneiddi niður sveppi og bætti út í ásamt smá niðursaxaðri papriku. Lét grænmetið malla á pönnunni í smá stund og hellti svo kókosmjólkinni yfir og lét þetta sjóða niður í dágóða stund. Kryddaði með smá salti og pipar.Ég bar matinn svo fram með soðnu brokkolíi.
Posted by Ragnhildur at 4:50 AM | Labels: Kjúklingur, Kvöldmatur, Paleo | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
Íslensk kjötsúpa
Sunday, January 27, 2013
Ég er búin að vera alveg sjúk í súpur undanfarið. Það hentar líka vel fyrir Paleo-átakið því þá get ég eldað mikið magn í einu og skipt niður í einingar fyrir hádegismat. Í stað þess að útbúa hádegismat á hverju kvöldi fyrir svefninn. En ég er núna búin með 11 daga af Whole30 átakinu og ég er ekki frá því að ég finni mun. Ég sofna mjög hratt á kvöldin, jafnvel fyrr en venjulega og ég glaðvakna við klukkuna. Það breytir því þó ekki að ég snúsa yfir mig hehe. Ég kúri bara áfram. Svo hef ég ekki fundið neitt til í maganum en mér hefur alltaf verið frekar bumbult og með ónot í maganum á morgnanna, alveg síðan ég var lítil. Þannig að líklega hefur þetta mataræði einhver jákvæð áhrif á mann.
Ég var að klára að sjóða kjötsúpu, það er nú ekki erfitt að Paleo-væða kjötsúpu. Sleppa hvítu kartöflunum og sleppa krafti og grjónum. Ég gerði stútfullan 5 lítra pott af kjötsúpu og hún er troðin af grænmeti. Mjög fín.
Kjötsúpa
1-1.2 kíló súpukjöt
2 lítrar vatn
1 msk salt
1 rófa
4 gulrætur
1/2 sæt kartafla
1/3 grasker (butternut squash)
1/2-1 hvítkálshaus
1-2 msk súpukrydd
1-2 lárviðarlauf ef vill
salt og pipar eftir smekk
Setjið vatn í pott og komið suðu upp. Þerrið kjötið og snyrtið til og bætið því út í vatnið ásamt salti. Látið sjóða í um 40 mínútur og fleytið ofan af vatninu ef þarf. Skerið grænmetið niður í sneiðar eða bita eftir smekk. Eftir 40 mínútur má taka kjötið upp úr og skera niður í þægilega munnbita og fjarlægja bein og fitu ef vill, og setja kjötið svo aftur út í. Bæta svo súpujurtum og öllu grænmetinu fyrir utan hvítkálið út í pottinn. Það þarf að sjóða í um 15-20 mínútur. Setjið hvítkálið út í 5-10 mínútum síðar. Smakkið súpuna svo til með salti og pipar.
Súpan er auðvitað ekki nákvæmlega eins og kjötsúpa, því það er svo rótgróið í bragðlaukunum að hafa kartöflur með en engu að síður kemst hún mjög nálægt "the real thing". Það eina sem mér finnst slæmt er að geta ekki klárað máltíðina með því að teyga ískalt mjólkurglas eins og venjulega eftir kjötsúpu.
Ég ætla líka að ítreka að það er mikið af grænmeti, ég hef ekki bestu rýmisgreindina og viðurkenni það fúslega. Ég þurfti að fiska kjötið upp úr pottinum og skera það af beinunum því annars hefði súpan flætt upp úr pottinum eftir að grænmetið fór út í! Fólk verður bara að meta það fyrir sig hvað er passlegt magn grænmetis. Svo má auðvitað nota annað grænmeti eða sleppa einhverju.Posted by Ragnhildur at 6:55 AM | Labels: Kvöldmatur, Paleo, Súpa, Uppskrift | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
Kjúklingasúpa
Monday, January 21, 2013
Ég ákvað að malla kjúklingasúpu í kvöldmatinn, bæði
til þess að nýta kjúklingasoð sem ég bjó til um helgina og líka til að elda nógu stóra máltíð til að geta notað afgang í nesti í hádegismat. Ég eldaði heilan kjúkling á laugardag og ákvað að prófa að útbúa soð. Beinin fóru í pott ásamt öllu skinninu og því sem var afgangs, fyrir utan kjötið, ásamt vatni, lárviðarlaufi, gulrót, sellerístöngli, 1/2 lauk, piparkornum og ögn af salti. Þetta sauð ég niður í einhverja 3-4 klukkutíma, síaði og setti í ísskáp. Ég hef aldrei áður gert soð og veit ekki hvort þetta sé besta leiðin til þess en það allavega varð soð úr þessu. En auðvitað má fólk nota kraft og vatn, mjög einfalt mál. Svo notaði ég þessa uppskrift sem viðmið að súpunni, en fór aðeins útfyrir rammann.
Kjúklingasúpa
2 msk kókosolía
1 laukur saxaður
2 hvítlauksrif rifin
stór engiferbútur rifinn
1 rautt chilli saxað
4 gulrætur, rifnar
2 græn epli, rifin (næst ætla ég bara að nota eitt epli)
stór matskeið karrí
heimalagað kjúklingasoð, eða 1-2 teningar +vatn
2 dósir hakkaðir tómatar
2 dósir kókosmjólk
1-2 dósir vatn
1200 g kjúklingalundir eða bringur
salt og pipar
ferskur kóríander
Svo smakkaði ég súpuna til með þessum kryddum: karrí, tandoori, cummin, cayenne pipar, paprika, chili powder. Mér finnst betra að hafa smá svona kick í vetrarsúpum.
Steikti lauk, hvítlauk, engifer og chili úr olíu í 5 lítra potti. Bætti svo gulrótum og eplum út í ásamt karrý. Smellti svo soðinu út í ásamt tómötunum og sauð saman á meðan ég skar kjúklinginn í bita, í um 15 mínútur. Bætti 2 dósum af kókosmjólk út í og skolaði innan úr þeim með heitu vatni og bætti út í. Náði upp suðu og bragðbætti súpuna með kryddunum sem eru talin upp hér að ofan, dash af hverju, henti svo kjúklingnum út í og lét hann eldast og malla í súpunni þar til ég gat ekki beðið lengur afþví ég var orðin svo svöng.
Jós í skálar og klippti ferskt kóríander yfir.
Posted by Ragnhildur at 11:12 AM | Labels: Kjúklingur, Kvöldmatur, Paleo, Súpa | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
Paleo fajitas
Sunday, January 20, 2013
Ég bjó til eins konar fajitas í kvöldmatinn, án þess að nota tortillur. Mér datt í hug að prófa nota kál til að vefja í. Ég átti reyndar bara lambhagasalat og það er ansi þunnt og viðkvæmt en þetta kom samt alveg fínt út, en væri líklega betra með einhverju sterkara káli. Hinsvegar var ég svo upptekin af þessu brasi mínu að ég steingleymdi að taka myndir! En hér kemur uppskriftin allavega:
"Fajitas" fyrir tvo
1 pakki kjúklingalæri, úrbeinuð og skinnlaus
1 msk kókosolía
1 hvítlauksrif
1/2 rautt chili
lítill engiferbúti
salt og pipar
paprikuduft
cummin
kóríander (kryddið)
óreganó
1/2-1 paprika, eftir stærð
nokkrir sveppir
stilkar af fersku kóríander
Ég hitaði olíuna á pönnu og skar kjúklinginn niður í bita og steikti. Reif hvítlaukinn og engiferið niður og saxaði hálft chili og bætti út í kjötið. Kryddaði svo með paprikudufti, cummin, kóríander, ögn af óreganó og salti og pipar. Þegar kjúklingurinn var orðinn steiktur skar ég paprikuna í lengjur og sveppina í sneiðar og bætti út á pönnuna og steikti smá með kjötinu ásamt stilkum af kóríander sem urðu afgangs frá guacamoleinu.
Guacamole
1 þroskað avókadó
1/4 rautt chilli
1/2 lime
ferskt kóríander
salt og pipar
Kirsuberjatómatar
Ég stappaði avókadóið niður, saxaði chilli og kóríander og bætti út í og kreisti safann úr hálfu lime yfir og saltaði og pipraði. Ég skar nokkra kirsuberjatómata út í en bar restina af þeim fram með matnum.
Svo tók ég lambhagasalatblöð og skellti guacamole á þau, kjötinu og paprikublöndunni og sneiðum af tómat, vafði saman og borðaði.
Ég var að hugsa um að búa til ferskt salsa líka með, en nennti því svo ekki. Það væri samt ábyggilega mjög gott með.
Posted by Ragnhildur at 12:44 PM | Labels: Kjúklingur, Kvöldmatur, Paleo, Ragnhildur, Uppskrift | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
Ég er komin á sjötta dag í Whole30 og mér gengur bara ótrúlega vel finnst mér. Ég hef ekkert svindlað og ég er að spá hvort það henti mér hreinlega betur að vera með eitthvað svona strangt prógramm þar sem ég bara má ekki fá svo mikið sem einn bita af pítsu í stað þess að reyna að fá mér bara eina sneið...
Það eina sem mér finnst svolítið vefjast fyrir mér er morgunmaturinn, ég hef ekki lyst á afgang af kvöldmat á morgnanna og ég vakna ekki nógu snemma til að brasa egg og beikon eða eitthvað. En ég hef gert nokkra græna sjeika og þeir eru allir að koma til hjá mér. En ég gerði líka þessar mini eggjakökur í vikunni og þær komu rosa vel út. Ég sá þessa uppskrift hér, og notaði hana sem viðmið. Ég átti hamborgarhryggssneiðar frá Kjarnafæði (enginn sykur í þeim) og notaði í botninn og hliðarnar. Ég smakkaði þessar fyrst heitar og þær voru allt í lagi þannig, en svo fannst mér þær mun betri kaldar, ég borðaði tvær í morgunmat í bílnum ásamt nokkrum kirsuberjatómötum.
Mini eggjakökur 6 stk
6 sneiðar hamborgarhryggsálegg
2 msk olía
1/4 laukur
100 g sveppir
2 bitar frosið spínat (ca 130 gr), afþýtt og kreist
4 egg
2 tsk kókosmjólk/möndlumjólk
1 tsk kókos-/möndluhveiti*
6-12 kirsuberjatómatar (ég notaði 6 en fannst það svo of lítið, mæli með að auka magnið í 9-12)
salt og pipar
*ég var nýbúin að gera möndlumjólk og setti tæpa teskeið af hratinu út í eggjahræruna en það má held ég alveg sleppa því. Ég ætlaði að nýta hratið í eitthvað, en restin af því endaði í ruslinu.
Hita ofn í 190°C. Ég gleymdi að sjálfsögðu að smyrja muffinformið en það má gjarnan nota helminginn af olíunni til þess. Svo skar ég hamborgarhrygginn niður þannig að einn hluti fór í botninn á muffinformi og tveir hlutar meðfram hliðunum. Það skiptir engu hvort þetta verði eitthvað súper fínt. Svo fór matskeið af olíu á pönnu og laukurinn og sveppirnir steiktir og svo kældir aðeins. Eggin hrærð saman ásamt kókosmjólk, salti og pipar og möndluhrati. Grænmetinu svo hrært út í og eggjahrærunni hellt út í muffinmótin með kjötinu. Kirsuberjatómatar helmingaðir eða fjórðungaðir og settir ofan á. Bakað í ofni í 25-30 mínútur eða þar til tilbúið.
Næst ætla ég að prófa að minnka spínatmagnið og bæta við rifnum gulrótum og papriku og jafnvel krydda með timíani eða óreganó.Posted by Ragnhildur at 12:13 PM | Labels: Morgunmatur, Paleo, Uppskrift | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
bíddu hvaða ár er?
Wednesday, January 16, 2013
Obbosí hvað það er langt síðan ég bloggaði. Jólin komin og farin og nýárið ekkert svo nýtt lengur. Mér til afsökunar var ég að byrja í nýrri vinnu og að útbúa heimagerðar jólagjafir... svo er ég bara búin að vera södd eftir gamlárs og er rétt núna að koma mér í gírinn, haha.
Ég strengdi engin áramótaheit þannig, en ég held það gerist hjá flestum að þegar nýtt ár gengur í garð að maður fer að spá í hvað er hægt að gera til að bæta sig í lífinu. Það er tvennt hjá mér. Mig langar að vera duglegri að hitta vini mína, stinga upp á kaffihúsahittingi eða bjóða fólki til mín að tilefnislausu og algjörlega casual. Ég dett svo oft í að það verði að hóa saman "öllum hópnum" eða gera eitthvað sérstakt og hafa extra fínt og huggó en það er ekki aðalmálið. Hitt atriðið mitt kemur svo þessu bloggi meira við og það er að vera heilsusamlegri. ííík. En eitt skref í einu og ég ákvað eftir ekki svo mikla umhugsun og smá skyndiákvörðun að taka Whole30 áskorunina í Paleo mataræðinu. Ég hef aðeins lesið mér til um þetta og veit svosem ekki hvort þetta sé best í heimi eða ekki en það kemur í ljós. Og það er frekar ólíklegt að grænmeti, ávextir, kjöt og fiskur drepi mig á 30 dögum.
En ég er á öðrum degi áskoruninnar, fyrsti dagurinn gekk vel. Eina vandamálið mitt var að drekka kaffið mitt svart. Dagurinn í dag var aðeins erfiðari, og ég er enn frekar óörugg með hvað má og má ekki. Ég bjó mér til hristing í morgunmat úr spínati, epli, banana, sellerí, engifer, lime, möndlum og smá vatni. Ég er ekki með það alveg á hreinu hvort það sé í lagi að búa til hristing eða ekki en ég hafði eiginlega ekki val um neitt annað í morgun. Nema hvað helvítið blandaðist ekki nógu vel og ég var á hraðferð að venju og endaði á að pína ofan í mig kekkjóttan hristing og kúgast í bílnum. En niður fór hann samt og bragðið var ekki slæmt, bara áferðin.
En kvöldmaturinn í kvöld heppnaðist mjög vel fannst mér og ég ákvað því að henda þeirri uppskrift hingað inn, ég veit ekki hvort það sé einhver hér sem vill nýta sér Paleo vænar uppskriftir en þá get ég allavega haft þetta fyrir mig :)
Hakk og hvítlauksblómkálsmús
Hakk og grænmeti
olía
1 laukur saxaður
1 hvítlauksrif rifið
2 gulrætur saxaðar
2 sellerístilkar rifnir
1 paprika söxuð
5 sveppir saxaðir
1 pakki hakk (var með blöndu af nauta og svína)
1-2 msk tómatpúrra
tómatar í dós
salt og pipar
basilíka þurrkuð
óreganó þurrkað
ítölsk kryddblanda
chilipiparflögur
balsamedik skvetta
ég setti smá olíu í pönnu og steikti grænmetið, steikti svo hakkið og blandaði þessu saman. Hrærði tómatpúrru og tómata í dós út í og kryddaði svo hakkið, ég mældi það ekkert heldur kryddaði bara svolítið vel, enda er enginn kjötkraftur í réttinum. Svo setti ég lokið á pönnuna og lét þetta malla á meðan ég gerði blómkálið klárt.
Hvítlauksblómkálsmús
1 blómkálshaus, skorinn í bita
1 msk olía
1-2 hvítlauksrif, rifin
1 tsk rósmarín
salt og pipar
Ég sauð blómkálið í vatni í potti, en þeir sem geta gufusoðið eiga að sjálfsögðu að gera það. Þegar blómkálið var soðið skellti ég því í sigti og setti olíuskvettu í pottinn og hvítlaukinn, rósmarínið, saltið og piparinn út í. Þegar hvítlaukurinn var búinn að malla smá í olíunni slökkti ég undir pottinum og setti blómkálið út í pottinnn og stappaði með kartöflustöppu. Þegar ég var búin að því tók ég töfrasprota og maukaði blómkálið betur.
Úr þessu varð alveg fínasta máltíð, það er svolítið mikið hvítlauksbragð af blómkálinu, ég notaði tvö rif en það var samt svo gott. Það er kannski nóg að nota eitt.Posted by Ragnhildur at 11:50 AM | Labels: Kvöldmatur, Paleo, Ragnhildur, Uppskrift | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |

.jpg)