-
Möndlumjólk og krukkuhafragrautur
Thursday, February 21, 2013
Ég gerði nýjan skammt af möndlumjólk í gær. Ég var komin með smá nóg af kókosmjólk, í öllu. Möndlumjólkin sem ég gerði í gær var síðan sú allra besta sem ég hef gert. Ég notaði fleiri döðlur og hreina vanillu (ekki dropa) sem ég var að splæsa í handa sjálfri mér.
Það er mjög létt að gera möndlumjólk. Maður leggur desilíter eða bolla af möndlum í vatn í 12-24 tíma (ég læt desilíter duga, mjólkin klárast ekki það hratt hjá mér). Svo er vatninu hellt af möndlunum og þær maukaðar í blandara ásamt 3-4 desilítrum (eða bollum) af vatni og 3-5 döðlum sem hafa legið í bleyti í 20 mínútur. Svo bragðbætti ég hana með hnífsoddi af vanillu og agnarögn af salti. Ég hellti maukinu í gegn um sigti og síðan aftur í gegnum (hreinan og ónotaðan) nælonsokk. Þá mjólkar maður vökvann í gegn, mjög skemmtilegt verk. Svo fór hún í glerflösku og inn í ísskáp.
En ég held áfram að prófa bannflokkana eftir Whole30 og í gær/dag var glúteinlaust kornmeti prufa. Ég notaði því möndlumjólkina og bjó mér til krukkuhafra eins og ég borðaði svo mikið af í haust. Ég var búin að sakna þess að fá mér krukku með hafragumsi í morgunmat svo ég var mjög glöð í morgun. Í stað AB mjólkur og mjólkur notaði ég möndlumjólkina og setti hafra, chia fræ, banana og frosin hindber út í. Allt hrist saman í krukku og geymt í ísskáp yfir nótt.
Glúteinlausa kornmetisprufan fór reyndar í smá rugl hjá mér því mér bauðst óvænt að fara á sushinámskeið í gær. Ég greip að sjálfsögðu tækifærið og það var mjög skemmtilegt, en þá borðaði ég sushi með hrísgrjónum og soyasósu sem tilheyra sitt hvorum bannflokknum. En svona er þetta bara, og ég reyni svo að halda áfram næstu daga á hreinu og beinu brautinni.
Posted by Ragnhildur at 3:00 PM | Labels: Hafrar, Morgunmatur, Paleo, Uppskrift | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
Mínímalískar pönnukökur
Sunday, February 17, 2013
Haltu á ketti hvað ísinn í gær var góður!!! Svona svo ég hrósi sjálfri mér svolítið mikið, vóts hvað mér fannst hann sjúklega góður. Hluti af því er ábyggilega sú staðreynd að ég var ekki búin að borða ís eða súkkulaði í rúman mánuð... en ég sleikti skálina nánast mér fannst hann svo góður. Una systir sagði að hún hefði viljað meiri sykur/döðlur í hann en við erum ekki með sömu sykurpallettuna og fólk getur auðvitað still sykurmagnið eftir behag. Mér fannst hann alveg akkúrat passlega sætur án þess að vera of, og dökkt súkkulaðibragðið naut sín. Næst prófa ég að gera hann úr kókosmjólk til að gera hann paleovænni.
Ég bjó til sunnudagsmorgunverð í morgun, einfaldar bananapönnsur með jarðarberjum og smá grískri jógúrt (þessi mjólkurdagur minn teygðist aðeins yfir í mjólkurhelgi, en bara fram að hádegi). Ég hafði heyrt af þessum "tveggja hráefna" pönnsum áður en hafði nákvæmlega enga trú á því að þær væru bragðgóðar. En ég hef gert þær tvisvar sinnum núna og þær koma ótrúlega vel út Alls ekki yfirþyrmandi eggjabragð eða áferð.
Bananapönnsur
Grunnurinn í þessum pönnsum er 1 þroskaður banani og tvö egg. Það þarf ekkert annað! Ég stappaði banana og skellti í könnu með tveimur eggjum og þeytti saman með töfrasprota. Svo bræddi ég rúma teskeið af kókosolíu á pönnukökupönnu og hellti út í ásamt kanilklípu og saltkorni. Ég steikti svo litlar lummur á tæpum miðlungshita úr deiginu og borðaði með niðurskornum ferskum jarðarberjum ásamt grískri jógúrt með döðlumauksskvettu í. Ég borðaði ekki allar pönnsurnar ein, en alveg vel rúman meirihluta. Ótrúlega góður sunnudagsmorgunmatur og skemmtilega hollur!
Posted by Ragnhildur at 11:57 AM | Labels: Bakstur, Bananar, Morgunmatur, Paleo, Uppskrift | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
míníeggjakökur
Sunday, January 20, 2013
Ég er komin á sjötta dag í Whole30 og mér gengur bara ótrúlega vel finnst mér. Ég hef ekkert svindlað og ég er að spá hvort það henti mér hreinlega betur að vera með eitthvað svona strangt prógramm þar sem ég bara má ekki fá svo mikið sem einn bita af pítsu í stað þess að reyna að fá mér bara eina sneið...
Það eina sem mér finnst svolítið vefjast fyrir mér er morgunmaturinn, ég hef ekki lyst á afgang af kvöldmat á morgnanna og ég vakna ekki nógu snemma til að brasa egg og beikon eða eitthvað. En ég hef gert nokkra græna sjeika og þeir eru allir að koma til hjá mér. En ég gerði líka þessar mini eggjakökur í vikunni og þær komu rosa vel út. Ég sá þessa uppskrift hér, og notaði hana sem viðmið. Ég átti hamborgarhryggssneiðar frá Kjarnafæði (enginn sykur í þeim) og notaði í botninn og hliðarnar. Ég smakkaði þessar fyrst heitar og þær voru allt í lagi þannig, en svo fannst mér þær mun betri kaldar, ég borðaði tvær í morgunmat í bílnum ásamt nokkrum kirsuberjatómötum.
Mini eggjakökur 6 stk
6 sneiðar hamborgarhryggsálegg
2 msk olía
1/4 laukur
100 g sveppir
2 bitar frosið spínat (ca 130 gr), afþýtt og kreist
4 egg
2 tsk kókosmjólk/möndlumjólk
1 tsk kókos-/möndluhveiti*
6-12 kirsuberjatómatar (ég notaði 6 en fannst það svo of lítið, mæli með að auka magnið í 9-12)
salt og pipar
*ég var nýbúin að gera möndlumjólk og setti tæpa teskeið af hratinu út í eggjahræruna en það má held ég alveg sleppa því. Ég ætlaði að nýta hratið í eitthvað, en restin af því endaði í ruslinu.
Hita ofn í 190°C. Ég gleymdi að sjálfsögðu að smyrja muffinformið en það má gjarnan nota helminginn af olíunni til þess. Svo skar ég hamborgarhrygginn niður þannig að einn hluti fór í botninn á muffinformi og tveir hlutar meðfram hliðunum. Það skiptir engu hvort þetta verði eitthvað súper fínt. Svo fór matskeið af olíu á pönnu og laukurinn og sveppirnir steiktir og svo kældir aðeins. Eggin hrærð saman ásamt kókosmjólk, salti og pipar og möndluhrati. Grænmetinu svo hrært út í og eggjahrærunni hellt út í muffinmótin með kjötinu. Kirsuberjatómatar helmingaðir eða fjórðungaðir og settir ofan á. Bakað í ofni í 25-30 mínútur eða þar til tilbúið.
Næst ætla ég að prófa að minnka spínatmagnið og bæta við rifnum gulrótum og papriku og jafnvel krydda með timíani eða óreganó.Posted by Ragnhildur at 12:13 PM | Labels: Morgunmatur, Paleo, Uppskrift | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
Morgunverður fyrir B-manneskjuna
Sunday, November 4, 2012
Ég tilheyri hinum alræmda hópi B-manneskja. Ég fer seint á fætur, þýt um íbúðina í leit að því sem ég þarf að taka með mér og hleyp út 10 mínútum of seint og alltaf án þess að fá mér morgunverð. Svo var það í haust að ég rakst á uppskrift að hafragraut sem er búinn til kvöldið áður og bíður tilbúinn í ísskápnum um morguninn. Síðan þá hefur þetta verið morgunmaturinn okkar beggja á heimilinu. Þessi hafragrautur er súper-einfaldur og fljótlegur, það þarf ekki að elda neitt og hann er svo bragðgóður að það er hálfótrúlegt að öll hráefnin séu svona holl fyrir mann.
Einn af fyrstu grautunum sem ég gerði, með AB mjólk, höfrum, chia, banönum og jarðarberjum Næturhafrar:1/4 bolli grófir hafrar (30 grömm)1 tsk Chia fræ1/4 bolli létt AB mjólk1/4 bolli léttmjólk1/4 bolli bananar, skornir í bitau.þ.b. 7 frosin hindbervanilla og/eða kanillhunang ef villHráefnin fara öll í krukku, loki smellt á og allt hrist vel saman (ég set vanillu í minn skammt og Sigurgeir fær hunang og kanil). Skellið svo krukkunni inn í ísskáp yfir nótt. Takið hana út um morguninn aðeins áður en það á að borða grautinn, til að ná mesta kulinu af. Ég tek minn alltaf með mér og borða í vinnunni. Mér finnst líka bráðfyndið að labba um með hafragraut í veskinu.Mér finnst svo krúttulegt að setja grautinn í glerkrukku, en auðvitað dugar hvaða ílát sem er, svo lengi sem það er lok á því. Samanhristur grauturinn er svo sem ekki mikið fyrir augað, en bragðgóður er hann!Ég hef prófað að hafa bara AB mjólk og bara venjulega mjólk, en mér finnst grauturinn verða mátulega þykkur þegar ég blanda saman til helminga. Svo er líka mjög gott að hafa fersk jarðarber í stað hindberja. Ég hef líka prófað frosin bláber og brómber, en er hrifnari af rauðu berjunum.Posted by Ragnhildur at 3:43 PM | Labels: Chia fræ, Hafragrautur, Hafrar, Morgunmatur, Ragnhildur, Uppskrift | 0 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |
-
Allt sem er grænt grænt
Wednesday, March 14, 2012
Það er komið alvöru vor í Manchester og páskaliljurnar komnar upp um allan bæ. Ég er því minna í skapi fyrir súpur og kássur og meira í skapi fyrir salöt og þess háttar. Ég fann að lokum fljótlegan og þægilegan hollan kvöldverð til að gera eftir vinnu í gær á Skinnytaste, salat með kjúklingabaunum.
Ég fylgdi uppskriftinni nánast alveg, mældi hráefnin kannski ekki nákvæmlega og notaði spínat í stað ruccola. Salatið var mjög gott á bragðið og alveg rosalega einfalt og fljótgert. Þetta var samt alveg rosalega léttur kvöldverður og ég myndi næst annaðhvort gera salatið í nesti eða hádegismat, eða bera það fram með einhverju fleiru í kvöldmat. Ég held einnig að það væri enn betra með ruccola eins og í uppskriftinni, ég þurfti bara að kaupa spínat því ég ákvað loksins að prófa líka að búa til „grænt skrímsli“ í morgunmat.
Mér finnst einhvernveginn grænir hristingar vera í umræðunni út um allt á matarbloggum og á fésinu svo ég gat ekki annað en prófað.
Græna skrímslið kom bara ljómandi vel út, þótt ég sé nú kannski ekki tilbúin að drekka svona á hverjum morgni. En það er ótrúlega fyndið hvernig hann bragðast bara eins og banani og hnetusmjör, ekkert spínatbragð. Svo er líka svo skemmtilegt að borða skrímsli í morgunmat og ég trúi því vel að þetta sé góð leið til að koma spínati ofan í litla krakka, ég kunni allavega að meta skemmtanagildið í grænum morgunmat.
Í mitt skrímsli fór:
1 lítill frosinn banani
væn lúka af spínati
1/2 bolli low fat vanillu jógúrt
ca 3/4 bolli léttmjólk
1 kúfuð teskeið hnetusmjör
Henti þessu öllu í KitchenAid blandarann og þeytti vel, ég vildi sjá til þess að það væru engin hálfsöxuð spínatblöð fljótandi í drykknum. Ég gerði einn fyrir mig og einn hnetusmjörslausan fyrir Sibbmund og við skemmtum okkur stórvel yfir morgunmatnum. Ég vildi bara óska að ég hefði skyr til að setja í svona skrímsli, svo sé ég líka fyrir mér að skeið af Nutella eða einhverju svipuðu væri sjúklega góð í skrímslið líka, en ég er ekki viss um að það sé jafn hollt.
Posted by Ragnhildur at 4:04 PM | Labels: Grænt skrímsli, Kvöldmatur, Morgunmatur, Pasta, Salat, Uppskrift | 1 comments | Email This BlogThis! Share to X Share to Facebook |