Forrétturinn var salat með ofnbökuðum rauðrófum, geitaosti og pekanhnetum, ég fann uppskrift sem ég hafði til hliðsjónar á Skinnytaste, sem er ein af mínum uppáhalds matarbloggum. Salatið heppnaðist svo vel, ég hefði getað borðað mér til óbóta af því.
Hrefnuhakkbollurnar voru svo í aðalrétt, ásamt tagliatelle og einfaldri tómata-sósu, smá útúrsnúningur frá kjötbollum frá Nönnu, og í eftirrétt var ostakaka sem ég átti í frysti frá því ég var að baka fyrir Gestgjafann seinast, Twix og m&m ostakaka og ég sá einmitt í Hagkaup áðan að blaðið er komið í verslanir. Þetta hljómar kannski krakkalega, en ég er mjög ánægð með hvernig ostakakan kom út og auðvitað má sleppa m&minu og þá er hún meira elegant. Ég set kannski uppskriftina af henni inn seinna, en hún er í Kökublaði Gestgjafans fyrir þá sem vilja kíkja.
1/2 rauðrófa
Gott blandað salat, helst íslenskt, eitt búnt/poki/kassi
75 g pekan hnetur
100 g geitaostur
2 msk ólívuolía
2 msk balsam edik
1 msk hunang
auka olía, salt og pipar
Hitið ofn í 200°C. Takið hálfa rauðrófu, afhýðið hana og skerið í teninga. Setjið rauðrófuna í eldfast mót, dreypið olíu yfir og saltið og piprið. Bakið í ofni í 50-60 mínútur. Kælið í um hálftíma. Ristið hneturnar á pönnu. Setjið olíu, balsam og hunang í litla krukku og hristið saman, hellið yfir salatblöðin og veltið vel saman með höndunum í skál. Skiptið salatinu á diska eða setjið á fallegt fat. Dreifið rauðrófunum yfir ásamt pekanhnetunum og klípið geitaostinn í litla bita yfir. Saltið ögn og piprið.
Ítölsk hrefna
(er hvalur ekki daglegt brauð á Ítalíu?)
(er hvalur ekki daglegt brauð á Ítalíu?)
1/2 laukur
1 hvítlauksrif
2-3 ristaðar brauðsneiðar
1 egg
salt
pipar
börkur af 1/2-1 sítrónu
2-3 msk rautt pestó
600 g hrefnuhakk
Skellið lauk, hvítlauk og brauði í matvinnsluvél og saxið. Bætið eggi, salti, pipar, sítrónuberki og pestó út í og blandið vel saman. Hrærið út í hrefnuhakkið í skál og blandið vel saman. Gerið kjötbollur úr deiginu, það er fínt að nota mæli-matskeið til að fá þær jafnar og passlega stórar. Setjið í eldfast mót og bakið í 18-20 mínútur. Gerið sósuna á meðan.
Sósa
1 krukka tómat Passata
1 tsk ítölsk kryddblanda
1 tsk óreganó
2 msk rautt pestó
salt og pipar
Setjið öll hráefnin í stóra pönnu og hitið rólega á lágum hita. Smakkið til. Bætið kjötbollunum svo út í sósuna og berið þannig fram.
Berið fram með 350 g af tagliatelle sem er soðið skv. leiðbeiningum á pakka.
Bon Appetit.
Þetta var dáááásamlegt!
Sama og hún sagði :ö
Ég er kannski blind, en hvernig voru bollurnar?? :)
Mér finnst einstaklega spennandi að gera bollur úr hrefnuhakki, hef ekki einusinni séð hrefnuhakk!
Bollurnar voru mjög góðar, ég mæli með þeim. En þessar bollur eru líka æði úr nautahakki. Ég hef séð frosið hrefnuhakk bæði í Bónus og í Iceland, kíktu eftir því.
Geggjað, ég er spennt að prófa :)