Ég fylgdi uppskriftinni nánast alveg, mældi hráefnin kannski ekki nákvæmlega og notaði spínat í stað ruccola. Salatið var mjög gott á bragðið og alveg rosalega einfalt og fljótgert. Þetta var samt alveg rosalega léttur kvöldverður og ég myndi næst annaðhvort gera salatið í nesti eða hádegismat, eða bera það fram með einhverju fleiru í kvöldmat. Ég held einnig að það væri enn betra með ruccola eins og í uppskriftinni, ég þurfti bara að kaupa spínat því ég ákvað loksins að prófa líka að búa til „grænt skrímsli“ í morgunmat.
Mér finnst einhvernveginn grænir hristingar vera í umræðunni út um allt á matarbloggum og á fésinu svo ég gat ekki annað en prófað.
Græna skrímslið kom bara ljómandi vel út, þótt ég sé nú kannski ekki tilbúin að drekka svona á hverjum morgni. En það er ótrúlega fyndið hvernig hann bragðast bara eins og banani og hnetusmjör, ekkert spínatbragð. Svo er líka svo skemmtilegt að borða skrímsli í morgunmat og ég trúi því vel að þetta sé góð leið til að koma spínati ofan í litla krakka, ég kunni allavega að meta skemmtanagildið í grænum morgunmat.
1 lítill frosinn banani
væn lúka af spínati
1/2 bolli low fat vanillu jógúrt
ca 3/4 bolli léttmjólk
1 kúfuð teskeið hnetusmjör
Henti þessu öllu í KitchenAid blandarann og þeytti vel, ég vildi sjá til þess að það væru engin hálfsöxuð spínatblöð fljótandi í drykknum. Ég gerði einn fyrir mig og einn hnetusmjörslausan fyrir Sibbmund og við skemmtum okkur stórvel yfir morgunmatnum. Ég vildi bara óska að ég hefði skyr til að setja í svona skrímsli, svo sé ég líka fyrir mér að skeið af Nutella eða einhverju svipuðu væri sjúklega góð í skrímslið líka, en ég er ekki viss um að það sé jafn hollt.